Þýski vagninn ,,Phæton Bettina”!

Fyrstu kynni eru alltaf spennandi!

Hugleiðing smiðs á tímamótum!

Kannski ég eigi ekki eftir að kynnast fleiri vögnum en þessum eina, til viðgeðrar á Íslenskri grund, en þetta er samt gaman, og ég er búinn að býða nokkuð mörg ár eftir að fá að upplifa þetta eða síðan það kviknaði áhugi um og upp úr 1990. Þega þetta er skrifað varðar mig lítið eða ekkert um hvort vagninn var/er vinsæll eða frægur, þetta er alvöru hestvagn, það er það sem skiptir mig máli. Hluti af margra alda langri sögu farartækja, síðan löngu fyrir Kristsburð; að hugsa sér, langur tími sem fór í að þróast hingað og svo kom bíllinn og ,,eyðilagði” fegurðina sem var í langri þróun. Já ég veit, það var kölluð þróun og framfarir, ég er nú ekki svo viss um það lengur?

 

Mynd #1

Vagninn er frekar ,,ungur” að árum, líklega frá seinni hluta síðustu aldar (gisk). Hjólin eru smíðuð af hefbundinni aðferð sem heitir á ensku: ,,Ofset” þar sem pílárarnir eru sikk sakk í Nöfin um hálfan sentimetra. Þessi aðferð gerir hjólin enn sterkari en ella. Hjólin eru úr viði.  Járngrindin svarta yfir vagninum er ekki partur af honum.

 

Mynd #2

Megin ástæða þess að vagninn þarfnast viðgerðar er að úti í Evrópu lagðist ,,vargur” í hann. Brenna þurfti afturhluta hans til að vera viss um að stöðva litla tré átvöglin. En samt sem áður voru dýrin löngu dauð þegar komið var til landsins, þannig að brenna var öryggisráðstöfun; til að vera viss um að ekkert væri áfram í gagni. (Þessi tegund trjá ætu, lifir ekki á Íslandi vegna loftkulda) Gerðar voru mælingar og allt sem brennt var, breyttist í teikningu, svo vonandi verður hægt að reisa vagninn til fyrra horfs.

Mynd #3

Hér sjáum við nútíman koma saman við margra alda þróun; ég veit ekki hvað mér finnst. Öryggi kannski?, stílbrot á sögunni, kannski? Gúmmí hjólbarði, kom til sögunar síðari hluta 19 aldar, eða frá 1855. Því ekki nýtt fyrirbryggði sem slíkt, og ég mundi telja góð viðbót, í þróun hestvagna. Goodyear fann upp efnablönduna í ,,óhappi” við tilraunir sínar á vinnustofunni en missti allt og endaði í skuldafangelsi meðan aðrir græddu á tá og fingri á uppfinningu hans.


 

29 júlí Byrjað að huga að viðgerðum

 

Mynd #4

Bylgjupappinn er ágætur til að búa til skapalón en betra hefði verið að nota sléttan stífan pappa eins og er í skókössum. Hér þarf nákvæmi við eins og hægt er. Ég er að taka afrit af boganum eins og hann leggur sig vegna þess að ég hef í huga að gufubeygja hann og þá beggja mengin. En á ég eftir að útbúa mér gufustokk en það er nú ekki svo mjög flókið, bara að finna rétta tíman í það. En í öllu falli á ég bogan á ,,Phaeton” vagninum tilbúinn yfirfærðan á pappaspjald þegar mér hugnast að hefja gufubeygingar, en ég er búinn að afla mér þó nokkra upplýsinga um þá aðgerð og ég mun lýsa henni þegar þar að kemur, svo hef ég smá reynslu af því að gufubeygja.

Ein og við sjáum aftan á fótstiginu, þá vantar aftara aurbrettið og það verður skemmtileg áskorun að smíða það, flottur bogi sem endar í smá uppbrettu.

 

Mynd #5 Skapalónið


 

 

Mynd #6

26 oktober 2020 Var að fá mér 36 mm topp og millistykki til að geta þjónustað Phaeton Bettinu betur enda verð ég að fara að huga að því að taka hann sundir vegna plássleysis sem er líka skynsamlegt því það þarf að hressa upp á hann og smíða svolítið á hann áður en hann fer saman aftur.


 

 

Mynd #7

Gott að ná hjólinu undan, róin ekki mjög föst en það þarf að losa bremsklossan fyrst. ,,Diskunin” sést vel á þessari mynd; gerir það að verkum að góður styrkur kemur í hjólið og það þolir betur álagið.


 

 

Mynd #8

Einfalt að losa bremsuklossan af. Bara þessi skástífa með boltum í gegn uppi og niðri.


 

 

Mynd #9

Spindilinn er kónískur um þrjá millimetra, mjórri yst/fremst. Róin herðist ,,afturábak” sem er eftir fræðunum enda losna þær aldrei.


 

 

Mynd #10

Bremsudiskurinn er nauðsinlegur í dag svo öryggið sé meira, við viljum meira öryggi en frágagnur disksins er einfaldur en líka öruggur því hann er soðin við járnhringinn (the hub-band) aftan á nafinu/náinu og járnhringurinn er svo stikkaður eða skrúfaður niður í nafið (the hub band is nailed to the hub). Bremsudiskurinn er ekki mikið áberandi og skemmir lítið útlit vagnanna svona yfirleitt.


 

 

Mynd #11

Spindil slífin (the box) er kónískur eins og spindilinn klæddur með plastþynnu sem skipt er um þegar sú gamla slitnar svo er smurt með koppafeiti. Í fyrndinni var smurt með dýrafitu og þá var allur öxullinn úr við oftast Eik. Það er eitthvað svo einfalt og fullkomið við að horfa á vagnhjól, uppfinning sem er búinn að vera við lýsi síðan um 3000 fyrir Krist. Saga bílsins er eins og neðanmálsgrein í samaburið við sögu hest, uxa og allra vagna sem dregin voru annað hvort af dýrum eða mönnum.

error

Njótið vefsins og deilið að vild :)

Follow by Email
YouTube
LinkedIn
Scroll to Top