Efni í pílára vélunnið ágúst ´20

Askurinn/tré ,,skepnan” 2″ tilbúin í bútun.

Askurinn/tré ,,skepnan” séð frá hinum endanum.

Breiddinn og þykktinn/dýptin umreiknuð úr tommum yfir í millimetra. Þægilegt að nota Google og ,,gougla” ,,convert Inches to millimeters”.
Mynd af algengum pílárum úr bókini Hjólasmíði (Wheelmaking)

Þykktin/dýptin á pílárunum fyrir formun/mótun athuga hverning þykktin gengur upp í breidd plankans.

Bútun í báðar lengdir áður. Breidd efnisins er frá 15 til 21 sentimetrar. Lengd, þykkt og breidd píláranna er sótt í bókina um Brewster, sem var hátt skrifaður vagnaframleiðandi á 19 ándu öld.

Efnið vel þurrt og frábært aða vinna það.

Svo er Askurinn bandsagaður í nýju fínu sögninni og hún er feiki nógu öflug í þetta verkefni.

Svo er efnið í píláranna afrétt og heflað í vinkil á tveimur hliðum samkvæmt venju við vélavinnu á tré.

Tékkað á hvort ekki sé efnið komið í vinkill, en það er mjög mikilvægt vegna þess að ég nota hornrétta fleti til að vinna t.d. tappann sem gengur niður í náið (the hub) og allt er undir nákvæmni komið eins og hægt er.

Þá er pílára- efnið tilbúið í þykktarheflun. Strikin merkja hornrétt horn sem fylgir landinu í þykktarheflinum og allt verður heflað í endanlega þykkt. Askurinn er með fallegra efni sem ég hef unnið við um daganna.

Svo er bara ein mynd af þykktarhefluninni en stykkinn eru 62. – 2 extra ef eitthvað klikkar sem það gerir alltaf.
Pílárarnir komnir í ferkantað form. 40.132 cm eða sem næst x 34.036 cm eða sem næst. Bæði í fram og afturhjól!
Þá er að prófa að renna en skilja eftir góðan enda vegna þess að ég þarf að gera tappa sem gengur inn í Nafið (the nave, the hub). En þarna komst ég að því að ég verð að breyta röðuninni á verkþáttunum og líma saman og renna fyrst Nöfin (the hub) áður en ég kemst lengra með píláranna. Aðalega vegna þess að mér vantar nákvæma lengd á tappann sem gengur inn í Nöfin (the hub) Já það voru mistökin sem ég minntist einhverstaðar á síðunni 🙂
error

Njótið vefsins og deilið að vild :)

Follow by Email
YouTube
LinkedIn